Bandaríski plötuútgefandinn Marion „Suge“ Knight verður í næsta mánuði dæmdur í 28 ára fangelsi fyrir að hafa ekið yfir mann og drepið hann fyrir þremur árum síðan.
Réttarhöld yfir Knight áttu að hefjast eftir nokkra daga vegna dauða hins 55 ára Terry Carter sem ekið var á fyrir utan veitingastað í Los Angeles árið 2015 í kjölfar deilna vegna kvikmyndarinnar Straight Outta Compton.
Knight, sem er 53 ára, hefur setið á bak við lás og slá síðan í janúar 2015 þegar hann var handtekinn og ákærður fyrir morð. Hann var einnig ákærður fyrir morðtilraun og fyrir að hafa ekið af vettvangi eftir að hafa ekið pallbíl sínum á Carter og annan mann fyrir utan veitingastaðinn. Atvikið náðist á öryggismyndavél, eins og sjá má í frétt BBC.
Knight ákvað að berjast ekki gegn ákærunum í réttarsal en hann átti yfir höfði sér lífstíðardóm.
The one-time rap mogul Suge Knight will be sentenced to 28 years in prison for a 2015 hit-and-run death tied to the film "Straight Outta Compton" https://t.co/JqWHOmsQ9H
— The New York Times (@nytimes) September 21, 2018