Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði Greg Gianforte, þingmanni Repúblikanaflokksins, en hann réðst á blaðamann Guardian í fyrra. Gianforte skellti blaðamanninum í gólfið en Trump kallaði hann „sinn mann“.
„Greg er klár,“ sagði Trump á kosningafundi í Montana í gær. „Ég myndi hins vegar aldrei glíma við hann.
Allir sem geta skellt einhverjum í gólfið eru mínir menn,“ sagði Trump og uppskar mikinn hlátur og fagnaðarlæti frá stuðningsfólki sínu.
'Any guy that can do a body slam, he's my guy': Donald Trump praises violent attack on journalist pic.twitter.com/FQq3yXNQ90
— The Independent (@Independent) October 19, 2018
Gianforte játaði að hafa ráðist á blaðamann Guardian í aðdraganda kosninga í Montana í fyrra. Hann var dæmdur til að greiða 385 Bandaríkjadali í sekt, sinna 40 klukkustunda samfélagsþjónustu og fara í 20 klukkustunda reiðistjórnunarnámskeið.
Nefnd til verndar blaðamönnum (CPJ) og Guardian krefjast þess að Trump biðjist afsökunar á orðum sínum.
Ben Jacobs, blaðamaðurinn sem Gianforte réðst á, ákvað að lögsækja hann ekki gegn því skilyrði að þingmaðurinn skrifaði afsökunarbeiðni og gæfi 50 þúsund dali til CPJ.