Ríkisstjórn Bretlands hefur ákveðið að setja breska herinn í viðbragðsstöðu í tengslum við áform stjórnvalda um að stórauka undirbúning fyrir þann möguleika að landið yfirgefi Evrópusambandið án þess að samið verði sérstaklega um það við sambandið.
Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að herinn verði til taks verði þörf fyrir stuðning við að halda uppi röð og reglu. Gavin Williamson, varnarmálaráðherra Bretlands, sagði í neðri deild breska þingsins í dag að 3.500 hermenn yrðu í viðbragðsstöðu reiðubúnir að styðja við opinberar stofnanir við að takast á við erfiðleika sem gætu komið upp.
Ráðherrum í ríkisstjórninni var greint frá því á fundi hennar í dag að litið væri nú svo á að útganga úr Evrópusambandinu án samnings yrði sjálfkrafa raunin ef ekki tækist að semja við sambandið. Gert er ráð fyrir að Bretland yfirgefi Evrópusambandið 29. mars.