Þrjú ljón drápust er þau urðu fyrir vöruflutningalest á vesturhluta Indlandi í dag. Lestin átti leið um verndarsvæði í Girskóginum í Gujarat-fylki þar sem ljónin dvelja en þau eru af tegund sem er í útrýmingarhættu.
Öll þrjú drápust samstundis. Ljónin voru öll um það bil tveggja ára gömul,“ segir D T Vasavada, talsmaður skógræktaryfirvalda í samtali við AFP-fréttastofuna.
Rannsókn á slysinu er hafin og verður kannað hvort lestin hafi verið á of mikilli ferð og hvort starfsfólk verndarsvæðisins hafi ekki sinnt störfum sínum sem skyldi. „Ef svo reynist vera verður gripið til alvarlegra aðgerða,“ segir Vasavada.
Ljónin tilheyrðu sex ljóna hjörð í Girskóginum en verndarsvæðið er heimkynni um 500 villtra asískra ljóna (panthera leo persica).