Þyrluflugmaður í frönsku Ölpunum sýndi mögnuð tilþrif á dögunum þegar hann kom nokkrum skíðamönnum til bjargar sem höfðu óskað eftir aðstoð eftir að einn þeirra slasaðist á hné.
Skíðamennirnir voru í fjallshlíð í um 2.200 metra hæð og gat þyrlan ekki lent í fjallinu sökum erfiðra aðstæðna en í staðinn fór flugmaðurinn eins nálægt hinum slasaða og mögulegt var. Svo nálægt fer hann að sjá má þyrluspaðana um hársbreidd frá brekkunni. Í myndskeiðinu sem BBC birtir er einnig rætt við flugmanninn, Jean-Francois Martin, og segir hann björgunaraðferðina vera vel þekkta meðal þyrluflugmanna sem fljúga björgunarþyrlum í Ölpunum.
Hann segir að með því að fljúga svona nálægt skíðamönnunum hafi hann náð að spara dýrmætan tíma því veðrið breyttist hratt á svæðinu. Með þessu móti var hægt að ná samstundis til hins slasaða og sinna honum. Skíðamennirnir voru síðar allir hífðir upp í þyrluna.