Seint í gærkvöldi skall á hvirfilbylur í El Reno, smábæ rétt utan Oklahoma-borgar í Bandaríkjunum. Minnst tveir eru látnir og skemmdirnar eru verulegar. Aðeins eru nokkrir dagar síðan flóð riðu yfir á sama stað.
Storminn bar brátt að og bærinn allur enn að við að vinna úr skemmdum eftir mikil flóð nýverið. Svo virðist sem gistihúsið sem sjá má á myndunum hér hafi orðið einna verst úti og að dauðsföllin tvö hafi orðið þar.
Leitarmenn hafa verið að störfum í dag. Minnst 29 hafa verið lagðir inn á sjúkrahús, sumir með minni háttar meiðsli en aðrir alvarlega slasaðir.
Um 17.000 búa í El Reno sem er í 40 km fjarlægð frá Oklahoma.
„Ég bið til Guðs fyrir fjölskyldunum. Fólk er búið að missa gersamlega allt. Þú munt ekki trúa eyðileggingunni sem hefur orðið,“ sagði bæjarstjórinn í viðtali við fjölmiðla.