Konan sem fannst látin í íbúðarhúsi í miðborg Sydney í Ástralíu í gær hét Michaela Dunn og var 24 ára. Hún var skorin á háls. Ástralska lögreglan hefur staðfest að tengsl séu á milli láts Dunn og hnífaárásar í miðborginni í gær.
Vopnaður maður, sem ástralskir fjölmiðlar nafngreina sem Mert Ney, var handtekinn, grunaður um báðar árásirnar. Konan sem fyrir hnífaárásinni varð var flutt á sjúkrahús og er ástand hennar sagt vera stöðugt.
Að sögn lögreglu reyndi maðurinn að stinga fleiri og því sé um fleiri en einn glæpavettvang að ræða. Á myndbandsupptökum af atvikinu sést maðurinn hrópa „Allahu Akbar“ og „skjótið mig“. Þá sést hann hoppa upp á bíl og sveifla um sig hnífi á meðan annar maður ræðst til atlögu gegn honum vopnaður tágastól.
Atvikið átti sér stað um tvöleytið síðdegis að staðartíma á fjölmennum stað í miðborginni. Um hálftíma áður sást maðurinn fara inn í íbúð í nálægri götu og koma þaðan úr tuttugu mínútum seinna.
Móðir Dunn minnist hennar sem fallegrar og elskulegrar ungrar konu. Dunn er fyrrverandi háskólanemi sem hefur ferðast víða, að sögn móðurinnar. Ástralskir fjölmiðlar greina frá því að Dunn hafi starfað í kynlífsiðnaðinum. Í kjölfarið hafa samtök starfsfólk í kynlífsþjónustu í Ástralíu sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Dunn verði sárlega saknað.
Í yfirlýsingunni er athygli vakin á því að starfsfólk í kynlífsiðnaðnum sé oftar en ekki mismunað vegna starfs síns, en ætti að njóta sömu réttinda og verndar og fólk í öðrum starfsstéttum.