Að minnsta kosti fimm eru látnir og nokkurra er saknað eftir að eldgos hófst óvænt á nýsjálensku eyjunni Whakaari (e. White Island) um klukkan tvö eftir hádegi að staðartíma, eða um klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Eyjan er vinsæl ferðamannaeyja og talið er að um 50 manns hafi verið á eyjunni þegar eldsumbrotin hófust.
23 hefur verið bjargað en óvíst er hversu margir eru eftir á eyjunni. Björgunarmenn hætta sér ekki aftur að eyjunni sökum öskufalls og aukinnar eldvirkni.
Eyjan, sem er í einkaeigu, er skammt frá Norðureyju og er eldfjallið þar eitt virkasta eldfjall Nýja-Sjálands. Þrátt fyrir það er eyjan vinsæll áfangastaður ferðamanna sem fara þangað í dagsferðir og útsýnisflug yfir eyjuna.
Michael Schade var á meðal ferðamanna sem voru á eyjunni í morgun en var í þann mund að leggja af stað frá eyjunni þegar gosið hófst. Hann var við eldgíginn aðeins 30 mínútum áður en gosið hófst. „Við vorum nýkomin í bátinn þegar einhver benti okkur á þetta. Ég var hreinlega í áfalli. Báturinn sneri við og við kipptum nokkrum með um borð sem voru að bíða við höfnina,“ segir Schade í samtali við BBC.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sagði í ávarpi fyrir skömmu að lögregla muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að bjarga þeim sem eru á eyjunni, en erfitt er að áætla hversu margir eru eftir á eyjunni.