Milljarðamæringurinn Isabel dos Santos hefur verið ákærð fyrir fjársvik að sögn ríkissaksóknara í Angóla. Santos, sem er búsett í London, er sökuð um að hafa auðgast með því að arðræna eigið land, og í gegnum spillingu.
Í skjölum málsins, sem BBC fjallaði um, kom fram að hún á að hafa fengið aðgang að ábatasömum samningum um land, olíu, demanta og fjarskipti þegar faðir hennar, José Eduardo dos Santos, var forseti Angóla.
Isabel dos Santos er ákærð fyrir peningaþvætti og óvandaða stjórnsýsluhætti er hún stýrði ríkisolíufyrirtækinu Sonangol auk fleiri brota í tengslum við rekstur félagsins segir Helder Pitta Gros, ríkissaksóknari í Angóla, en hann hélt blaðamannafund um málið fyrir skömmu.