Svört kona í stað þrælakaupmanns

Marc Quinn er listamaðurinn á bak við styttuna sem nú …
Marc Quinn er listamaðurinn á bak við styttuna sem nú stendur í Bristol. AFP

Stytta af þrælakaupmanni sem breskir Black Lives Matter-mótmælendur steyptu af stalli sínum í júní síðastliðnum var skipt út í dag, án leyfis, og stendur þar nú stytta af svartri konu sem var ein af þeim sem ýtti styttunni niður. 

Um er að ræða styttu af Jen Reid með hnefann á lofti. Áður stóð stytta af Edward Colston í borginni Bristol þar sem Reid stendur nú. Múgur kastaði styttunni af Colston í sjóinn eftir að hafa hrint henni niður. 

Styttan hefur vakið talsverða athygli.
Styttan hefur vakið talsverða athygli. AFP

Nýja styttan var reist án vitneskju borgarstjórnar Bristol en hún ber heitið „alda krafts“. Reid var viðstödd afhjúpun styttunnar og sagði í samtali við Guardian að atvikið væri „bara ótrúlegt.“

„Þetta mun halda samtalinu [um misrétti á grundvelli litarhafts] áfram. Ég get ekki séð að því ljúki á næstunni,“ sagði Reid. 

Bristol er ein af þeim borgum sem var hvað mest flækt í þrælahald á átjándu og nítjándu öld. Styttan af Colston hafði staðið þar síðan árið 1895. Colston var þrælakaupmaður á átjándu öld og þingmaður íhaldsflokks. Fyrirtæki hans flutti með valdi fjölda vestur-Afríkubúa frá heimalöndum sínum til Bretlands.

Mótmælendurnir sem hrintu styttu Floyd niður eru hluti af Black Lives Matter-hreyfingunni sem fór af stað eftir að lögregla drap George Floyd, bandarískan svartan karlmann, í Minnesota í Bandaríkjunum í maí síðastliðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert