Sonur Bidens sætir rannsókn

Hunter Biden og Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna fagna saman …
Hunter Biden og Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna fagna saman sigri Joe Biden. AFP

Hunter Biden, sonur Joe Biden verðandi forseta Bandaríkjanna, sætir nú rannsókn vegna mögulegra undanskota frá skatti. Þetta kom fram í dag í yfirlýsingu frá Hunter Biden sjálfum, sem send var út af framboðshópi Bidens eldri. 

Í yfirlýsingunni segir Hunter Biden að hann hafi verið upplýstur um rannsókn á hendur sér í gær. Skrifstofa saksóknara í Delaware rannsakar málið.

Þá segist Hunter Biden taka málinu alvarlega en segist um leið viss um að fagleg og hlutlaus rannsókn muni leiða í ljós að ekkert ólöglegt sé að finna í sínu bókhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert