Yfir tvöhundruð milljón tilfelli af staðfestum smitum Covid-19 hafa verið skráð um heim allan frá því að veiran var fyrst greind í Kína í desmenber 2019 samkvæmt samantekt fréttastofu AFP.
Fjöldi smita fer sem stendur hratt fjölgandi á heimsvísu sem fyrst og fremst er drifið áfram af hraðri útbreiðslu delta-afbrigðis Covid-19.
Fjöldi dauðsfalla af völdum veirunni fjölgar nokkuð hægar en fjöldi smita samkvæmt sömu samantekt.