Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar árásarmanns eftir að hann skaut annan mann á kaffihúsi í Friðriksbergi í gærkvöldi. Maðurinn sem varð fyrir skotinu liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Um er að ræða þriðju skotárásina í Kaupmannahöfn á jafn mörgum dögum.
Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Lögreglunni barst tilkynning klukkan 21:38 að staðartíma um að skotum hefði verið hleypt af á kaffihúsi þar sem fólk sat við vatnspípureykingar. Kaffihúsið stendur við Åboulevarden götu sem skilur Friðriksberg frá Norðurbrú.
Fjórir til sex voru á kaffihúsinu þegar árásin var framin.
Árásarmaðurinn sem leitað er að er ungur. Hann er fullskeggjaður, svarthærður og um 175 sentímetra hár. Hann var klæddur í dökk föt, svartan jakka, svartar eða bláar buxur, svarta skó, svarta hanska og svarta grímu.
Eftir að árásarmaðurinn hafði hleypt af skoti hljóp hann af vettvangi og í átt að miðbæ Kaupmannahafnar. Hann stoppaði í versluninni Netto og náðist hann þar á eftirlitsmyndavél. Myndina úr henni má sjá hér að ofan.
Fleiri skotárásir hafa verið framkvæmdar í Kaupmannahöfn að undanförnu.
Síðdegis á fimmtudag lést 27 ára karlmaður eftir skothríð á Norðurbrúargötu. Tveir karlmenn hafa verið ákærðir í því máli en þeir neita sök. Hinn látni er sagður hafa tengst glæpagenginu NNV sem að sögn lögreglu gæti átt einhvern hlut að máli.
Á föstudag lést svo 17 ára drengur eftir skothríð á hárgreiðslustofu í Islev. Að sögn lögreglu var drengurinn búlgarskur ríkisborgari. 15 ára piltur og 28 ára karlmaður særðust í árásinni. Grunur leikur á að tveir gerendur hafi verið að verki en þeir hafa ekki verið handteknir.
Fréttin hefur verið uppfærð