Fimm látnir eftir rútuslys

Slysstaður, merktur með rauðu.
Slysstaður, merktur með rauðu. Kort/Google

Fimm létust og 21 er slasaður eftir rútuslys sunnan við Moskvu, höfuðborg Rússlands, snemma í morgun.

Samkvæmt frétt AFP-fréttastofunnar varð slysið klukkan 5:45 í morgun að stðartíma rétt við bæinn Voslebovo, um 270 kílómetra sunnan við Moskvu.

Í tilkynningu kom fram að fimm hefðu látist. Tvö hinna slösuðusu eru börn en alls voru 49 farþegar um borð í rútunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert