Dauðsföll tengd kórónuveirunni ná nú tveimur milljónum í okkar heimsálfu samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Stofnunin sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem greint er frá þessu. „Skelfileg tímamót urðu í gær þegar staðfest dauðsföll tengd kórónuveirunni í Evrópu hafa náð tveimur milljónum.“
Kórónuveiran gerði vart við sig í Kína í upphafi árs 2020 en Ítalía var fyrsta Evrópulandið þar sem holskefla smita reið yfir í fyrstu bylgjunni.