Bandaríkin og Suður-Kórea hafa lýst yfir áhyggjum af mikilli útbreiðslu kórónuveirunnar í Norður-Kóreu og bjóða fram aðstoð sína vegna ástandsins þar.
Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu forseta ríkjanna, Yoon Suk-yeol og Joe Biden, en sá bandaríski sótti Suður-Kóreu heim.
„Báðir leiðtogarnir lýsa yfir áhyggjum af útbreiðslu veirunnar í Norður-Kóreu. Þeir eru tilbúnir að vinna með alþjóðasamfélaginu og aðstoða stjórnvöld í Norður-Kóreu til að ráða niðurlögum veirunnar,“ kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, gagnrýndi fyrir nokkrum dögum viðbrögð embættismanna í landinu við Covid-19-heimsfaraldrinum og skipaði hernum að aðstoða við að útdeila lyfjum.
Yfir milljón manns hafa veikst í landinu og eru með „hita“ að sögn stjórnvalda. Þrátt fyrir það hefur Kim boðað útgöngubann á landsvísu til að stemma stigu við útbreiðslunni enda þjóðin óbólusett.