Almenningur safnaðist saman við virkið Vindolanda skammt frá Hadríanusarmúrnum í sýslunni Northumberland á Englandi.
Þar var eldur tendraður í tilefni af drottningarafmæli Elísabetar Bretlandsdrottningar.
Fjögurra daga hátíðarhöld vegna afmælisins hófust í gær. Elísabet tekur ekki þátt í hátíðarhöldunum í dag, heilsunnar vegna.