Evrópufánanum var í dag komið fyrir í þingsal úkraínska þingsins. Verður fáninn við hlið úkraínska fánans fyrir aftan forseta þingsins. Ruslan Stefantsjúk, forseti úkraínska þingsins, segir að um sögulega stund sé að ræða og að draumar séu að rætast. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir aðild Úkraínu að sambandinu vera innan seilingar og að sambandið muni standa við hlið Úkraínu alla leið að inngöngu.
Úkraína sótti um aðild að Evrópusambandinu fljótlega eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu í febrúar, en 23. júní samþykkti Evrópusambandið að veita Úkraínu stöðu umsóknarríkis.
Moving to tears - the EU flag is been brought to the plenary hall of @ua_parliament. To stay. pic.twitter.com/qkZxfwjF7O
— Matti Maasikas (@MattiMaasikas) July 1, 2022
Í dag þegar úkraínska þingið kom saman var fáni Evrópusambandsins borinn inn í þingið og komið fyrir fyrir aftan forseta þingsins. Matti Maasikas, sendiherra Evrópusambandsins í Úkraínu, birti myndskeið af afhöfninni á Twitter og má sjá mikla stemningu meðal þingmanna.
A historic moment! The flag of the European Union now in the Ukrainian Parliament 🇪🇺🇺🇦 It was my dream 💙💛 It came true. And I will add: the Verkhovna Rada deserves the EU flag both in color and in meaning pic.twitter.com/pQi6D1558u
— Ruslan Stefanchuk (@r_stefanchuk) July 1, 2022
Leyen flutti því næst ræðu fyrir úkraínska þingið í gegnum fjarfundabúnað. Sagði hún Úkraínu eiga mjög skýra Evrópusýn. Hún tók þó fram að langur vegur væri enn framundan varðandi umsóknarferlið sem krefðist mikillar vinnu Úkraínumanna.
Leyen sagði jafnfram að það að Úkraína væri með stöðu umsóknarríkis hefði verið næstum óhugsandi fyrir aðeins fimm mánuðum síðan. Sagði hún jafnframt að meðal krafna sem lægju fyrir áður en umsóknin gæti farið áfram væri að Úkraína breytti fjölmiðlalögum sínum, tæki upp ný lög sem minnkuðu völd olígarka og myndu setja á fót stofnun til að bregðast við spillingu.