Tvær íslenskar stúlkur að störfum er árásin varð

Lindex opnaði í Field's árið 2019.
Lindex opnaði í Field's árið 2019.

Tvær íslenskar stúlkur voru að störfum í versluninni Lindex í Field's í Kaupmannahöfn er skotárás varð um hálf sex í dag. 

Að sögn Al­berts Þórs Magnús­sonar eig­anda Lindex á Íslandi, og umboðsaðila Lindex í Dan­mörku, eru stúlkurnar ósærðar en í miklu áfalli.

Verslunarstjóri búðarinnar bjó í hverfinu og gat því að sögn Alberts sótt stúlkurnar og farið með þær heim. 

Nú eru þær á leið heim í leigubíl og hefur Lindex boðið þeim áfallahjálp.

„Við erum öll í sjokki og það líður öllum mjög illa yfir þessu,“ segir Albert að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert