Harma stöðuna sem upp er komin

Forystumenn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson …
Forystumenn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og formenn BSRB, BHM og KÍ skrifuðu undir samkomulag um breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna 19. september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það er mat fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga að fullt samræmi sé milli þess samkomulags sem gert var við heildarsamtök opinberra starfsmanna og lagafrumvarpsins sem liggur fyrir um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ríki og sveitarfélög harma stöðuna sem upp er komin.

Heildarsamtök opinberra starfsmanna hafa lýst því yfir að efni lagafrumvarpsins sé ekki í fullu samræmi við samkomulagið sem undirritað var 19. september. „Virðast heildarsamtökin telja að samkomulagið hafi falið í sér ótakmarkaða ábyrgð launagreiðenda á skuldbindingum A-deilda lífeyrissjóða næstu 20 árin,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Þá hafi fulltrúar ríkisins og sambandsins ítrekað tekið skýrt fram við forsvarsmenn heildarsamtakanna að ótakmörkuð bakábyrgð til langs tíma kæmi ekki til greina.

Fulltrúar misskilji ákvæði samkomulagsins

Þá segir í tilkynningu ráðuneytisins að svo virðist sem einhverjir fulltrúar heildarsamtakanna hafi misskilið mikilvæg ákvæði samkomulagsins og talið að þau veittu ríkari ábyrgð launagreiðenda en raun ber vitni.

„Í tengslum við undirbúning lagafrumvarpsins var haft ítarlegt samráð við fulltrúa heildarsamtakanna sem fengu tækifæri til að fara yfir lagafrumvarpið og bera ákvæði þess saman við samkomulagið. Við þá yfirferð kom ekki fram það sjónarmið að samkomulagið fæli í sér ótakmarkaða ábyrgð launagreiðenda á skuldbindingum A-deilda,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Ríki og sveitarfélög harma stöðuna

Ríki og sveitarfélög segjast harma þá stöðu sem upp er komin í málinu en unnið hafi verið að breytingum á fyrirkomulagi lífeyrismála í góðu samstarfi undanfarin ár og nú sé einstakt tækifæri til að ljúka málinu. Jöfnun lífeyrisréttinda veiti tækifæri til jöfnunar launa milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins sem erfitt sé að ná fram við óbreytta skipan.

Loks hafi ríki og sveitarfélög verið reiðubúin til að ræða afmarkaðar breytingar á fyrirkomulagi ábyrgðar launagreiðenda þegar breytt afstaða heildarsamtakanna lá fyrir en samtökin höfðu ekki áhuga á að vinna að slíku samkomulagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert