Dómgreindarleysi að setja OR-málið í brennidepil

Konur fjölmenntu í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem hátíðardagskrá …
Konur fjölmenntu í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem hátíðardagskrá fór fram vegna kvennafrídagsins. mbl.is/Eggert

Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits, hefur sent forsvarsmönnum samstöðufundarins, sem fór fram á Arnarhóli í gær í tengslum við kvennafrídaginn, erindi þar sem hún gerir alvarlegar athugasemdir við dagskrá fundarins.

„Í dag fannst mér afskaplega sorglegt að sjá konu afhent gjallarhorn og gefið tækifæri til að ráðast á aðra konu. Hún fékk að ávarpa samkomuna í dag og ráðast að konu í stjórnunarstöðu sem starfs síns vegna getur ekki varið sig gegn málflutningi hennar.

Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits.
Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits.

Þarna vísa ég til ræðu Áslaugar Thelmu Einarsdóttur sem kaus að beina spjótum sínum sérstaklega að starfsmannastjóra Orkuveitunnar, sem einnig er kona,“ skrifar Hildur í færslu sem hefur verið birt á Facebook.

Hún segir ennfremur að það ætti að vera skipuleggjendum kvennafrídagsins fullljóst að sú fordæmalausa umfjöllun sem málið hafi fengið í fjölmiðlum að undanförnu endurspegli aðeins það sem fram hefur komið á samfélagsmiðlum af hálfu Áslaugar Thelmu og eiginmanns hennar.

Eins og fram hefur komið var Áslaugu sagt upp störf­um hjá Orku nátt­úr­unn­ar, sem er dótt­ur­fyr­ir­tæki OR, um miðjan sept­em­ber. Hún hef­ur gagn­rýnt fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra ON, Bjarna Má Júlí­us­son, fyr­ir óviðeig­andi hegðun gagn­vart starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins. Í ræðu sinni í gær sagði hún að það hefði verið erfitt að fara til yfirmanna sinna til að til­kynna brot á eig­in vinnustað, sem lesa má í meðfylgjandi frétt.

„Spor þín eru þung á fyrsta fund­inn með starfs­manna­stjóra, þyngri á fund tvö og svo fram­veg­is. Er­indið er alltaf það sama. Þú ert að til­kynna rudda­skap og dóna­skap á þínum vinnustað. Örvænt­ing­in er mik­il þegar starfs­manna­stjór­inn seg­ir þér að spjalla við hann og finna út úr þessu,“ sagði Áslaug sem gagnrýndi framkomu starfsmannastjórans.

Áslaug Thelma Einarsdóttir var á meðal þeirra sem voru með …
Áslaug Thelma Einarsdóttir var á meðal þeirra sem voru með erindi á kvennafrídeginum í gær. Ljósmynd/Aðsend

„Starfsmannastjórinn og aðrir stjórnendur Orkuveitunnar eru bundnir trúnaði starfs síns vegna og geta ekki tjáð sig efnislega um málið í fjölmiðlum. Þó er ljóst að málið er nú til skoðunar hjá innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar og niðurstaða þeirrar skoðunar mun væntanlega leiða í ljós hvað sé rétt og rangt varðandi efnisatriði málsins. Mér finnst það því sýna mikið dómgreindarleysi hjá skipuleggjendum dagsins að setja þetta mál í brennidepil,“ skrifar Hildur ennfremur.

Myndskeið frá samstöðufundinum má sjá í meðfylgjandi frétt, en ræða Áslaugar hefst á mínútu 48:30. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert