Kringlumýrarbraut áfram lokuð

Kringlumýrarbraut verður lokuð lungann úr deginum.
Kringlumýrarbraut verður lokuð lungann úr deginum. mbl.is/​Hari

Til stóð að Kringlumýrarbraut yrði einungis lokuð í gær en nú er ljóst að lokunin verður framlengd og verður brautinni lokað frá klukkan tíu nú í morgunsárið og til klukkan sjö í kvöld. 

„Líkt og margir hafa tekið eftir hefur undanfarið staðið yfir vinna á lóð Veitna við Bolholt 5, milli Kauphallarhússins og Valhallar, í Reykjavík. Þar er verið að endurbora eina gjöfulustu borholu Veitna, RG-20, sem hefur skaffað borgarbúum heitt vatn frá árinu 1963. Framkvæmdin hefur miðað að því að koma öflugri dælu í holuna og þannig ná upp meira magni af heitu vatni,“ segir í tilkynningu frá Veitum um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert