Búnaður við Ölfusvatnsvík settur upp á morgun

Frá leit björgunarsveita að flugvélinni við Þingvallavatn um helgina.
Frá leit björgunarsveita að flugvélinni við Þingvallavatn um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stefnt var að því að fyrsti hluti búnaðar þess sem setja þarf upp við Ölfusvatnsvík kæmi á vettvang í kvöld. Færð á vettvangi hefur hins vegar ekki verið góð og hefur því öllum flutningum verið frestað til morguns. Þá verður einnig ruddur slóði að aðstöðuplani. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar á Suðurlandi. 

Segir í tilkynningunni að lögregluvakt verði á vettvangi frá því uppsetning hefst og þar til aðgerðum er lokið.

Veðurspá gerir ráð fyrir norðan blæstri í fyrramálið en hægari með kvöldinu og hæglætisveðri á fimmtudag og fram á föstudag en hörku frosti.

Ísröst byrjuð að myndast með bökkum vatnsins

„Í lok dags á morgun þarf allur búnaður að vera kominn á staðinn og uppsetningu þarf að ljúka  fyrir fimmtudag.  Ísröst er byrjuð að myndast með bökkum vatnsins og þarf að finna hentugan stað til „sjósetningar“ á prömmum sem notaðir verða úti á vatninu,“ segir í tilkynningunni.

Á búnaðarlista fyrir utan sérstakan útbúnað til köfunar er m.a. eftirfarandi:

  • Aðstaða fyrir stjórnun og fjarskipti
  • Aðstaða fyrir kafara fyrir búnað og utanumhald
  • Aðstöðugámur fyrir fataskipti kafara
  • Færanleg ljósavél í fullri stærð
  • 2 stk prammar til vinnu á vatninu
  • Matur
  • Vinnubúðir með starfsmannaaðstöðu / aðstöðu til að matast
  • Snyrtingar
  • Snjóruðningstæki

Mögulegt að aðgerðirnar leiði til ummerkja á bakka vatnsins

Fram kemur í tilkynningunni að fundað hafi verið með sérfræðingum í umhverfismálum og Brunavörnum Árnessýslu vegna hættu á mengun við aðgerðirnar. Einnig var farið yfir sameiginlega rannsóknaráætlun lögreglu og RNSA á flakinu og nauðsynlegar aðgerðir tímasettar í ferlinu með stjórnendum kafara.

„Mögulegt er að umfang aðgerðanna leiði til tjóns á lággróðri og annarra ummerkja á bakka vatnsins einkum þar sem þungir prammar verða settir út.  Lagfæringar á því þurfa að bíða vors en reynt verður af fremsta megni að komast hjá því að eftir verði nokkur ummerki um aðgerðirnar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert