Stjórnarkjör Eflingar að hefjast

Frá vinstri: Ólöf Helga Adolfsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Guðmundur …
Frá vinstri: Ólöf Helga Adolfsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Guðmundur Jónatan Baldursson. mbl.is

Stjórnarkjör Eflingar hefst klukkan 9 í dag og lýkur klukkan 20 næstkomandi þriðjudag.

Þrír eru í framboði til formanns stéttarfélagsins, eða þau Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður, Ólöf Helga Adolfsdóttir, núverandi varaformaður, og Guðmundur Jónatan Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu.

Kosningin er rafræn og fer fram á vef Eflingar. Þau sem ekki kjósa rafrænt eða hafa ekki rafræn skilríki geta mætt á skrifstofur Eflingar í Reykjavík eða Hveragerði og greitt atkvæði, að því er kemur fram á vef stéttarfélagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert