Byssumaðurinn enn inni í íbúðinni

Sérsveitarmaður miðar byssu að blokkinni.
Sérsveitarmaður miðar byssu að blokkinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út klukkan tuttugu mínútur í átta í morgun eftir að skotið var á bíl við Miðvang í Hafnarfirði. Byssumaðurinn er enn inni í íbúð sinni sem er í blokk við Miðvang 41. Ekki er ljóst hvort hann sé einn þar inni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á svæðinu.

„Engan sakaði í morgun, en ljóst er að mikil hætta var á ferð og var sérsveit ríkislögreglustjóra strax kölluð til vegna alvarleika málsins,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem barst um klukkan hálf ellefu í morgun.

Lögreglumenn í forgrunni, bifreiðin sem skotið var á í bakgrunni. …
Lögreglumenn í forgrunni, bifreiðin sem skotið var á í bakgrunni. Ekki hefur verið gefið út hvort eigandi bílsins hafi verið í honum þegar skotinu var hleypt af. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skýrslutaka yfir eiganda bílsins sem skotið var á stendur yfir. Mynd frá vettvangi sýnir að rúða í bílnum er brotin. Lögreglan vill ekki tjá sig um það hvort eigandi bílsins hafi verið staddur í bílnum þegar á hann var skotið en bifreiðin var þá kyrrstæð. Hún var stödd sunnan megin við blokkina, að sögn lögreglu. 

„Þar eru bifreiðastæði, en gegnt húsinu er leikskóli. Aðgerðir lögreglu á vettvangi standa enn yfir, en starfsfólki og börnum á leikskólanum hefur verið gert að halda sig innandyra á meðan á þeim stendur og þá hefur verið lokað fyrir alla umferð um hluta Miðvangs,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu.

Húsið hefur ekki verið rýmt

Dróni á vegum lögreglu er á ferð yfir svæðinu að skoða bygginguna og fjölgaði sérsveitarmönnum þar um klukkan tíu í morgun. Drónanum hefur verið flogið hátt yfir blokkinni.

Sjónarvottar sem mbl.is hefur rætt við segja að skothvellir hafi heyrst í blokkinni við Miðvang 41 um klukkan sjö í morgun. Íbúar eru enn í húsinu sem hefur ekki verið rýmt en lögregla sér til þess að fólk haldi sig í íbúðum sínum. Þá eru í og við blokkina fjölmargir lögreglu- og sérsveitarmenn. 

Svæðið innsiglað.
Svæðið innsiglað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verslunin Nettó er á neðri hæð blokkarinnar og hefur henni verið lokað en starfsfólk verslunarinnar er enn þar inni.

Fréttin er í vinnslu

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Leikskólanum Víðivöllum sem er í grenndinni hefur verið lokað.
Leikskólanum Víðivöllum sem er í grenndinni hefur verið lokað. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Dróni lögreglu flaug hátt yfir húsinu.
Dróni lögreglu flaug hátt yfir húsinu. mbl.is/Tómas Arnar
Lögreglumenn aðstoðuðu leigubílsstjóra við að koma bíl hans af vettvangi.
Lögreglumenn aðstoðuðu leigubílsstjóra við að koma bíl hans af vettvangi. mbl.is/Tómas Arnar
Bætt hefur í lið sérsveitarinnar á staðnum.
Bætt hefur í lið sérsveitarinnar á staðnum. mbl.is/Tómas Arnar
mbl.is/Tómas Arnar
Blokkin sem byssumaðurinn er enn staddur í.
Blokkin sem byssumaðurinn er enn staddur í. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert