Að minnsta kosti þrisvar sinnum stærra

Frá rýmingu Grindavíkurbæjar í gær.
Frá rýmingu Grindavíkurbæjar í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Benedikt Gunn­ar Ófeigs­son, sér­fræðing­ur Veður­stof­unn­ar á sviði jarðskorpu­hreyf­inga, segir að kvikuflæðið sé enn talið vera um 75 rúmmetrar á sekúndu inn í ganginn sem liggur undir Sundhnúkagígaröðinni og Grindavík.

„Það eru ekki mjög hraðar breytingar á þessu. Við erum enn þá að horfa á svæðið við norðurhluta gangsins við Sundhnúka, sem er kannski enn þá að þenjast út, og við sjáum mesta gliðnun og aflögun þar,“ segir Benedikt við mbl.is.

„Þarna er ennþá í gangi einhver opnun og þarna gæti verið kvikuflæði ennþá inn í ganginn.“

Afar mikill viðbúnaður hefur verið við Grindavík síðustu daga.
Afar mikill viðbúnaður hefur verið við Grindavík síðustu daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samanburður við síðustu ár

„Heildarmagnið sem er komið þarna inn er alla vega þrisvar sinnum meira heldur en í fyrsta innskotinu í Fagradalsfjalli,“ segir hann, spurður út í þessa atburðarás samanborið við fyrri gos.

Í samtali við mbl.is í gær sagði hann ljóst að þetta væri miklu stærri atburður en gos síðustu ára á Reykjanesskaga.

Horfa til Hagafells

Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur kvaðst aðspurður í morgun telja mögulegt gos einna líklegast við Hagafell, austur af Þorbirni og norðan Grindavíkur.

Beinist athyglin nú helst þangað?

„Já, við erum að horfa til Hagafells núna sem mögulegrar miðju á virkninni, eins og hún er í gangi, en aðalathyglin er á Grindavík á meðan fólk er þar að reyna bjarga verðmætum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert