Semji við leigusala um uppsögn eða afslátt

Húsalegulög kveða á um rétt leigjanda til að rifta leigusamningi …
Húsalegulög kveða á um rétt leigjanda til að rifta leigusamningi ef húsnæðið spillist svo á leigutímanum, af ástæðum sem ekki verða raktar til leigjanda að það nýtist eigi lengur til fyrirhugaðra nota eða teljist heilsuspillandi að mati heilbrigðisyfirvalda eða, ef réttur leigjanda er verulega skertur vegna laga eða annarra opinberra fyrirmæla eða vegna þess að hann fer í bága við kvaðir sem á eigninni hvíla. Samsett mynd/mbl.is/Eggert

Leigusölum er skylt samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga að „halda hinu leigða húsnæði í leiguhæfu ástandi“. Því er mikilvægt að leigjendur bregðist við, hafi samband við leigusala sína og leiti samninga um útfærslu á uppsögn, afslætti eða greiðsluhléi á meðan óvissa ríkir um leigusambandið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum en starfsfólk leigjendaaðstoðar samtakanna hafa fengið fyrirspurnir frá leigjendum í Grindavík undanfarna daga.

Hagsmunir beggja að semja 

Á vef leigjendaaðstoðarinnar leigjendur.is er að finna upplýsingar um réttindi og skyldur fyrir leigjendur og leigusala.

Í tilkynningunni segir að ljóst sé að grindvískir leigjendur geti ekki búið í húsnæði sínu þar sem þeim, eins og öðrum, hafi verið gert að yfirgefa bæinn. Þá segir að mikil óvissa ríki um hvenær fólk fái að snúa aftur og hvort leiguhúsnæði hafi orðið fyrir skemmdum.

„Það eru hagsmunir beggja að semja um útfærslu á uppsögn, afslátt eða greiðsluhlé á meðan óvissan ríkir. Sé enginn samningsvilji getur leigjandi gripið til riftunar. Mikilvægt er að hafa öll samskipti og samninga skriflega, svo ekki komi upp ágreiningur um mismunandi skilning á síðari stigum,“ eins og segir í tilkynningunni.

Óviðráðanlegar aðstæður

Þá segir að húsaleigulögin taki ekki beint á þeim aðstæðum sem uppi eru í Grindavík, aðallega þar sem um sé að ræða óviðráðanlegar aðstæður sem hvorki eru leigjanda eða leigusala að kenna á neinn hátt. Því ríki nokkur réttaróvissa en þótt lögin taki ekki á óviðráðanlegum aðstæðum, eins og jarðskjálftum eða eldgosi, hafi leigjandi rétt til að rifta leigusamningi samkvæmt ákvæðum þeirra ef:

„húsnæðið spillist svo á leigutímanum, af ástæðum sem ekki verða raktar til leigjanda að það nýtist eigi lengur til fyrirhugaðra nota eða teljist heilsuspillandi að mati heilbrigðisyfirvalda...

...eða, ef réttur leigjanda er verulega skertur vegna laga eða annarra opinberra fyrirmæla eða vegna þess að hann fer í bága við kvaðir sem á eigninni hvíla.“

Neytendasamtökin segja að riftun skuli vera skrifleg en að annað hvort SMS eða tölvupóstur nægi. Þá segja þau að rökstuðningur fyrir riftun þurfi að fylgja henni og að leigjandi skuli skila af sér lyklum til leigusala.

Húsaleigulög kveða á um að leigjandi greiði leigu allt þar til hann hefur tæmt íbúðina, sem er ómögulegt við núverandi aðstæður.

„Þó lögin taki ekki á því telja lögfræðingar Neytendasamtakanna líklegt að litið verði til þess að riftunin haldi, þó skil íbúðar sé ekki með fullkomnum hætti.

Óvíst er hvenær íbúar geta snúið aftur til Grindavíkur, og vilji leigjandi rifta leigusamningi, væri eðlilegast að leigusali og leigjandi kæmust að samkomulagi um hvernig leigjandi nálgist eigur sínar,“ eins og segir í tilkynningunni.

Afsláttur vegna viðhalds og viðgerða

Jafnframt segir í tilkynningu samtakanna að leigjendur geti samið um afslátt af leiguverði þegar fólki verði leyft að flytja aftur til Grindavíkur á meðan ráðist verður í nauðsynlegar viðgerðir á bæði leiguhúsnæði og innviðum í bænum. Í lögunum er kveðið á um afslátt af leiguverði í tengslum við skert afnot meðan á viðhaldi stendur. Samkomulag um afslátt skal vera skriflegt.

Þá minna samtökin fólk, sem lánað hefur eða leigt íbúðir sínar til burt hrakinna Grindvíkinga, á mikilvægi þess að gera skriflegan leigusamning og að ákvæði húsaleigulaga gildi jafnvel þó ekki komi til greiðsla frá leigutaka. 

Hér má finna góðar upplýsingar um allt sem viðkemur leigu á íbúðarhúsnæði á íslensku, ensku og pólsku.

Frekari upplýsingar fyrir leigjendur og leigusala er að finna á vef leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna leigjendur.is. Hægt er að senda fyrirspurnir hér eða hringja í Neytendasamtökin í síma 545 1200 alla þriðjudaga og fimmtudaga milli klukkan 12.30 og 15.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert