Krotað á veggi utanríkisráðuneytisins

Búið er að þrífa krotið af veggjum.
Búið er að þrífa krotið af veggjum. Ljósmynd/Aðsend

Orðið „samsek“ var krotað á veggi utanríkisráðuneytisins þegar mótmæli fóru þar fram sem félagið Ísland-Palestína stóð fyrir í morgun. 

Lögreglan var með viðbúnað á svæðinu vegna mótmælanna.

Í skriflegu svari til mbl.is segir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi ráðuneytisins, að ráðuneytið hafi ekki upplýsingar um hver stóð að baki krotsins, en búið er að hreinsa það af veggjum hússins. 

Krotað á veggi utanríkisráðuneytisins.
Krotað á veggi utanríkisráðuneytisins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert