Ómótstæðileg pítsa með geitaosti og gúmmelaði

mbl.is/Töddi brasar

Meistari Töddi galdrar hér fram hreint ómótstæðilega jólapítsu sem á sannarlega vel heima á aðventunni. Geitaostur og gúmmelaði prýðir pítsuna sem verður ekki kölluð annað en algjör negla. 

Brasið hans Tödda er hægt að nálgast HÉR.

Töddi ber sig fagmannlega að eins og búast mátti við.
Töddi ber sig fagmannlega að eins og búast mátti við. mbl.is/Töddi brasar

Jólapítsa með geitaosti og gúmmelaði

Þessi pizza er með jólaþema, veit ekki af hverju, bara eitthvað við hana sem minnir mig á jólin. Áleggið er rauð epli, hunang, pistasíur, þurrkað chilli og geitaostur. Lyktin af rauðum eplum tryllir mig, minnir mig á þann tíma sem ég vann á ávaxtalagernum hjá Mata, þá overdose-aði maður algjörlega á þessari lykt, en í dag færir hún mér einhvern yl.

Ég notaði Chavroux-geitaostinn (fæst í Krónunni), það er ekki of mikið ullarbragð af honum og það fer vel með hunanginu. Hér gengur allt upp. Ég set niðursoðna marsano-tómata í staðinn fyrir pizzasósu (fást út um allt í dag) og smá salt og hvítlaukskrydd yfir, rifinn mozzarella og svo áleggið.

Deigið er einhvern veginn svona:

  • 5 dl hveiti (helst durum, annars gerið bara það sem ykkur finnst best)
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 tsk. salt
  • ca 15 gr. þurrger (1 lítill pakki)
  • Rúmlega ein matskeið hunang
  • 1 „mjólkurglas“ volgt vatn

Ég er voðalega mikið í slumpinu, svo hnoðar maður þessu saman eins og enginn sé morgundagurinn, nú eða setur bara í KitchenAid-vélina og lætur malla þar til þetta er orðið að góðri klessu. Þá lætur maður hefast í góða stund (ca. 30-45 mín.) og svo hefst hnoðið aftur.

  • Tómatarnir fara á fyrstir, hvítlaukskrydd og gróft salt yfir
  • Rifinn mozzarella
  • Rautt epli, skorið í þunna báta
  • Klessur af geitaosti dreift jafnt um pizzuna
  • Þurrkað chilli dreift vel yfir
  • Pistasíurnar eru muldar yfir allt saman.

Svo er þetta bakað í ca. 14 mín. á 200°C, athugið að ofninn minn drífur ekki hærra, væri betra að nota meiri hita og jafnvel blástur. Svo gluðar maður hunangi yfir.

Jólin í pizzulíki!

mbl.is/Töddi brasar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert