Gratíneraður ketófiskur með papriku og camembert

Ljósmynd/Gott í matinn

Hér kemur einn dásamlegur frá Gott í matinn. Við erum að tala um fisk sem er svo bragðgóður að þig á eftir að langa í hann aftur og aftur ...

Gratíneraður ketófiskur með papriku og camembert 

4 skammtar

  • 800 g ýsa skorin í bita (7-800 g)
  • 3 paprikur, skornar smátt (2-3)
  • 1⁄2 blaðlaukur, smátt skorinn
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 1⁄2 askja smurostur með papriku
  • 1 Dala-camembert, skorinn í bita
  • 1 tsk. dijonsinnep
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1⁄2 grænmetisteningur
  • rifinn gratínostur frá Gott í matinn, góð handfylli

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180 gráður.
  2. Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins.
  3. Leggið í smurt eldfast mót.
  4. Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
  5. Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembertostinum, ásamt dijonsinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
  6. Smakkið til með svörtum pipar.
  7. Hellið sósunni yfir fiskinn.
  8. Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og restinni af camembertostinum, skornum í litla teninga.
  9. Bakið í um það bil 20 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn gullinbrúnn.

Uppskrift: Helena Gunnarsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert