71 árs og ætlar að ganga Jakobsveginn áður en hnén gefast upp á henni

Jóhanna Harðardóttir er 71 árs og vinnur ennþá eins og …
Jóhanna Harðardóttir er 71 árs og vinnur ennþá eins og herforingi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhanna Harðardóttir er 71 árs kjarnakona sem rekur Listasaum í Kringlunni. Það er brjálað að gera í fyrirtækinu enda fólk orðið sér meðvitaðra um að láta frekar gera við fötin sín en kaupa ný. Á sama tíma hefur netverslun aukist og það hefur verið atvinnuskapandi fyrir fyrirtækið því fötin sem keypt eru á netinu passa stundum ekki alveg á fólk. Þegar Jóhanna er ekki að vinna gengur hún á fjöll og stefnir á að ganga Jakobsveginn áður en hnén gefast upp á henni. 

Ég kynntist Jóhönnu í gegnum vinnuna hennar þar sem ég fer reglulega með föt til hennar í breytingu. Það getur nefnilega gert gæfumuninn að láta aðeins þrengja, stytta eða víkka svo fötin líti út fyrir að vera klæðskerasniðin. Á dögunum flutti hún Listasaum af þriðju hæði í Kringlunni yfir á bíóhæðina.

„Það voru Reitir sem óskuðu eftir því að færa mig niður á bíóhæðina þar sem miklar framkvæmdir eru núna á þriðju hæðinni. Ég er ótrúlega ánægð að vera komin hingað. Bæði er verslunin bjartari og mun meira líf hér á ganginum. Ekki skemmir svo fyrir að Te og kaffi er í þar næsta bili – auðvelt að sækja sér kaffibolla,“ segir Jóhanna.

Það eru ekki margar 71 árs gamlar manneskjur sem eru á útopnu á vinnumarkaði eins og Jóhanna. Einhvern tímann þegar ég fór til hennar sagði hún mér að hún ætlaði að minnka við sig vinnuna en það hefur ekki alveg orðið raunin.

„Það er svo gaman að vera til og ég á erfitt með að hætta. Held það sé ansi langt í að ég hætti að vinna en skrokkurinn er byrjaður að biðja mig að minnka aðeins vinnutímann. Ég var að vinna að lágmarki átta tíma á dag þangað til í fyrra en núna reyni ég að hætta aðeins fyrr á daginn. Langar líka að geta skellt mér í ræktina á miðjum degi og sinnt barnabörnunum. Þeim finnst nú ansi gott að vita af mér á mínum stað í Kringlunni og líta inn þegar eitthvað vantar,“ segir Jóhanna.

Jóhanna segir að umhverfisvitund hafi haft töluverð áhrif á fyrirtækið og fólk sé duglegra að láta gera við gömlu fötin.

„Fólk er orðið mun meðvitaðra um það að nýta fötin lengur og betur. Það þarf ekki alltaf að henda og kaupa nýtt. Smá yfirhalning eða viðgerð getur breytt ansi miklu,“ segir hún.

Í gamla daga kunnu allar húsmæður landsins að sauma og gera við föt og svona. Er það alveg dottið upp fyrir?

„Nei, það er varla alveg dottið upp fyrir en nútímakonurnar vinna mun lengri vinnudag úti núna en áður fyrr. Þær hafa ekki tíma til að sauma og einnig er saumaskapur plássfrekur og startkostnaðurinn kostar sitt. Mér finnst mjög sorgleg þróun að sjá að flestar vefnaðarvöruverslanir eru að leggja upp laupana. Það er svo mikið framboð í dag af tilbúnum fötum að það er mun hagstæðara að kaupa þau tilbúin en gera þau sjálfur.“

Byrjaði í Kaupmannahöfn

Jóhanna hóf feril sinn á saumasviðinu í Kaupmannahöfn í kringum 1970. Þar starfaði hún á saumastofu við að sauma föt fyrir sölusýningar.

„Þegar ég flutti til Íslands eftir 18 ára búsetu í Kaupmannahöfn vann ég ýmis störf og síðan á kvöldin sérsaumaði ég heima fyrir ýmsa þekkta einstaklinga. Síðan leiddi eitt af öðru og ég opnaði mína fyrstu verslun og saumastofu um 1994, Textilline, sem var til húsa í Faxafeni. Ég færði Textilline síðan niður á Laugaveg og tók við rekstrinum í Listasaumi í Kringlunni 2007. Ég lokaði Textilline á Laugaveginum fyrir fjórum árum,“ segir Jóhanna.

Þegar Jóhanna er spurð hvað henni finnist skemmtilegast við saumabransann segist hún elska að þjónusta fólk.

„Mér finnst mjög gaman þegar viðskiptavinirnir koma með ýmis flókin verkefni sem við verðum að finna hagkvæmar og jafnframt fallegar lausnir á. Auðvitað er alltaf skemmtilegast að hanna eitthvað en því miður hef ég sagt skilið við sérsauminn í dag og við einbeitum okkur aðallega að fatabreytingum og viðgerðum í Listasaumi þó svo að einstaka kúnni nái að plata mig.

Hausinn á mér er alltaf á fullu og ég fæ endalausar hugmyndir að einhverri flottri hönnun sem mig langar að framleiða. Óska þess stundum að ég hefði fæðst 30 árum seinnna því framþróunin hefur verið svo mikil og margt hægt að gera. Því miður er skrokkurinn ekki alveg jafnvirkur og hugurinn í dag,“ segir hún.

Fatabreytingar eru algengastar ásamt viðgerðum. Jóhanna og hennar fólk gerir mikið af því að síkka, stytta, þrengja, víkka og allt þar á milli. Þær gera líka mikið af því að yfirdekkja tölur.

„Við gerum við mikið af fatnaði og er gaman að sjá hvað fólk er orðið duglegt að endurnýta gamlar flíkur. Hægt er að gefa þeim nýtt líf með smá yfirhalningu. Með aukningu verslunar á netinu er fólk að panta alls konar fatnað sem stenst ekki væntingar þess. Komum við þá sterkar inn og lögum fatnaðinn þannig að hann passi betur og fara kúnnarnir með bros á vör út.“

– Fer fólk illa með fötin sín?

„Nei, ég myndi ekki segja það en það koma alls konar flíkur inn á borð til okkar. Fólk lendir oft í óvæntum atvikum; tekur of tryllt spor á dansgólfinu og buxurnar koma inn á borð til okkar rifnar á mánudeginum. Síðan slitna föt, fólk erfir föt og vill gera smá lagfæringar og þar fram eftir götunum.“

Lífsgleðin og krafturinn drýpur af Jóhönnu. Þegar ég spyr hana hvort hún eigi eitthvert gott ráð fyrir yngri konur sem vilja ná langt stendur ekki á svörunum:

„Það er að hafa óbilandi trú á sjálfum sér og aldrei gefast upp. Lífið hendir í okkur alls konar verkefnum, en ekki láta það stoppa sig þótt stundum þurfi að hægja á.“

Eitt sinn hitti ég Jóhönnu í flugvél. Þá var hún á leið í göngu hinum megin á hnettinum. Í frístundum gengur hún mikið og vill helst ekki fara í frí nema það innihaldi gönguferðir.

„Ég hef alltaf verið mjög virk og geng mikið. Ég á hund og það er ótrúlega hvetjandi að standa upp úr sófanum og drífa sig út með hana í langa göngutúra, sama hvernig viðrar. Útivera og langir göngutúrar næra mig andlega. Ég elska Ítalíu og hef farið í skipulagðar gönguferðir þangað. Einnig hef ég gengið part úr Jakobsveginum þar sem við gistum til skiptis á gistiheimilunum og klaustrum. Það er markmiðið hjá mér að klára Jakobsveginn áður en hnén gefast upp á mér,“ segir hún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál