Draumahús fyrir litla peninga

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Dreymir þig um að eignast fjögurra herbergja sérbýli með fallegum garði þar sem þú gætir vaknað við fuglasöng á morgnana? Ef svo er voru að koma í sölu splunkuný raðhús sem var verið að byggja. Þau eru í Lerkidal og eru ákaflega falleg. Ástríður Birna Árnadóttir sá um stíliseringu og innanhússráðgjöf en hún starfar hjá KOT og ÓRAR arkitektúr.

„Okkur fannst spennandi að taka að okkur að stílisera sýningaríbúðina í Lerkidal. Þessi raðhús eru einstaklega falleg með björtum og opnum rýmum. Það var okkur augljóst frá upphafi að húsin eru afskaplega vönduð, bæði hvað efnisval og frágang varðar. Við þurftum því að vanda valið á húsgögnum og húsmunum með fjölbreyttan hóp kaupenda í huga,“ segir hún.

„Þrátt fyrir að hafa unnið í um áratug sem arkitektar var þetta verkefni eitt af þeim fyrstu þar sem við tókum að okkur að stílisera hús sérstaklega fyrir sölu. Við sóttumst sérstaklega eftir því að vinna með verslunum og hönnuðum sem eru að okkar mati framúrskarandi á sínu sviði. Með því að velja fjölbreyttar vörur næst yfirbragð sem virkar persónulegt og líflegt. Við áttum mjög gott samstarf við NORR11 en vöruúrvalið þar rammar vel inn skandinavískan stíl sem við vorum að sækjast eftir. Ljósin í stofunni og borðstofunni eru þaðan, ásamt sófaborðum, og Mammoth-hægindastólnum sem er algjört stofustáss og einstaklega þægilegur,“ segir hún.

Ástríður Birna segir að textíll, flauelspúðar og vönduð gólfteppi skapi hlýleika í rýminu.

„Við völdum gólfteppin frá Kara Rugs, púða og teppi frá Ihanna home og flauelspúða frá DIMM-verslun. Rúmteppið og púðar í svefnherberginu auk ýmissa skrautmuna eru frá Lífi og list þar sem er endalaust úrval af fallegum vörum. MUN stúdíó í Reykjavík er ein af uppáhaldsbúðunum okkar en sú búð er rekin af sjálfum hönnuðunum. Það var frábært að vinna með þeim þar sem þær eru með svo skemmtilegt úrval af vandaðri íslenskri hönnun, bæði húsgögn, muni og textíl.

Til þess að ná fram upplifun í sýningaríbúð sem höfðar til sem flestra er mikilvægt að blanda saman vandaðri hönnun og hagstæðum en smekklegum lausnum. Það er því gott að geta leitað í IKEA sem er nánast endalaus uppspretta. Borðstofuborðið og sófarnir eru úr Habitat / Tekk en þar er gott úrval af fallegum húsgögnum sem eru bæði smekkleg og vönduð. Borðstofustólar og hillurnar í barnaherberginu eru frá Ilva.“

Ástríður Birna segir að til að toppa rýmið hafi plöntum og myndlist verið komið fyrir í raðhúsinu.

„Við fengum góða ráðgjöf um plöntur frá 4árstíðum og völdum nokkrar fallegar plöntur fyrir plöntustandana frá Stúdíó A Reykjavík. Steypta klukkan er úr smiðju Hildiberg sem er arkitekt frá Reykjanesbæ. Einnig áttum við fallegar myndir frá Reginu Rourke og Korkimon sem setja punktinn yfir i-ð.“

Af fasteignavef mbl.is: Lerkidalur 60

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál