Stofnun dr. Brynju Bragadóttur stofnuð

Brynja Bragadóttir dr. í vinnusálfræði féll frá í júlí síðastliðinn …
Brynja Bragadóttir dr. í vinnusálfræði féll frá í júlí síðastliðinn langt fyrir aldur fram.

Dr. Brynja Bragadóttir féll frá í blóma lífsins síðasta sumar. Nú hefur verið stofnaður minningarsjóður í hennar nafni gegn vinnustaðaeinelti. Lesendur Smartlands Mörtu Maríu þekktu Brynju vel af verkum hennar en hún skrifaði vinsæla pistla um vinnustaðaeinelti og sálfræði.

Stofnun dr. Brynju Bragadóttir hefur það markmið að vinna gegn vinnustaðaeinelti, en hún var frumkvöðull á sviði rannsókna og baráttu gegn vinnustaðaeinelti á Íslandi.

Í tilefni af stofnun stofnunarinnar verður efnt til tónlistarveislu í Bústaðakirkju sunnudaginn 31. janúar frá kl. 12.00 - 16.00.

Glæsilegur hópur listamanna kemur fram á tónleikunum þar á meðal systir hinnar látnu, Sólrún Bragadóttir sópransöngkona. Þar verða líka Bergþór Pálsson, Arnhildur Valgarðsdóttir, Anna Málfríður Sigurðardóttir, Þóra Fríða Sæmundsdóttir, Jón Svavar Jósefsson og Bartónar svo einhverjir séu nefndir.

Hildur Jakobína Gísladóttir og Arndís Ósk Jónsdóttir kynna frumkvöðlastarf Brynju og vinnustaðaeinelti og dr. Viðar Halldórsson fjallar um hvers vegna þeir sem skara fram úr verða oft fyrir einelti.

HÉR er hægt að lesa pistlana sem Brynja skrifaði og birtust á Smartlandi Mörtu Maríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál