Sölvi fjarlægir allt af YouTube

Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason.
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason. Ljósmynd/Aðsend

Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur haldið úti vinsælli rás á YouTube þar sem hann hefur birt hlaðvarp sitt, Podcast með Sölva. Nú hefur hann fjarlægt allt sitt efni af veitunni. Það gerði hann eftir að konur stigu fram og sögðu að hann hefði beitt þær ofbeldi. Í kjölfarið steig hann sjálfur fram og sagðist vera saklaus. 

„Síðustu daga hafa gengið ótrú­lega rætn­ar slúður­sög­ur um mig í þjóðfé­lag­inu sem eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Þetta gekk meira að segja svo langt að einn fjöl­miðill birti frétt um slúður­sög­una án þess þó að nafn­greina mig. Í frétt fjöl­miðils­ins kom fram að fyr­ir um tveim­ur vik­um hefði þjóðþekkt­ur ein­stak­ling­ur, sem sam­kvæmt sög­unni er ég, keypt sér kyn­lífsþjón­ustu, gengið í skrokk á vænd­is­kon­unni, verið hand­tek­inn og flutt­ur í varðhald. Um þetta er bara eitt að segja: málið er þvætt­ing­ur frá upp­hafi til enda.

Ég get ekki sagt ykk­ur hvað þess­ar sög­ur hafa haft mik­il áhrif á mig, fjöl­skyldu mína og vini. Ég hef verið sem lamaður síðustu daga og neitaði lengi vel að trúa að fólk tæki þátt í að dreifa slúður­sög­um sem þess­um. Frá því um helg­ina hef­ur sím­inn minn ekki stoppað vegna fyr­ir­spurna frá fjöl­miðlum um hvort þess­ar sög­ur séu sann­ar. Þegar málið er komið á það stig verð ég að bregðast við. Niður­brot­inn og svefn­laus leitaði ég í gær til Sögu Ýrar Jóns­dótt­ur hæsta­rétt­ar­lög­manns til að at­huga stöðu mína og hvernig ég ætti að bregðast við. Hún sagði mér að auðvelt væri að afsanna þetta með því að kalla inn mála­skrá mína hjá lög­reglu und­an­far­inn mánuð þar sem ljóst væri að ef lög­regl­an hefði haft ein­hver af­skipti af mér, bein eða óbein, þá kæmu þau fram í mála­skránni. Saga kallaði því eft­ir mála­skránni og feng­um við hana af­henta fyr­ir stundu og birti ég hana hér með. Eins og þarna kem­ur skýrt fram hef­ur lög­regl­an ekki haft nein af­skipti af mér, bein eða óbein, á þeim tíma sem þessi at­vik eiga að hafa átt sér stað. Þetta verður ekki skýr­ara. Það er ekk­ert til í þess­um slúður­sög­um.

Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél sem slúður­sög­ur eru. Þær eru mann­skemm­andi, niður­brjót­andi og hafa valdið mér og mín­um meira hug­ar­angri en ég hefði getað ímyndað mér. Ég verð alltaf jafn undr­andi á að fólk sé til í að tala illa um ná­ung­ann; fólk af holdi og blóði með til­finn­ing­ar og fjöl­skyldu. Hætt­um þessu!

Raun­ar líður mér svo illa að ég treysti mér ekki til að tjá mig frek­ar um málið og bið ég fjöl­miðla um að virða þá ósk mína,“ skrif­ar Sölvi. 

Í síðustu viku birti hann viðtal við sjálfan sig í hlaðvarpsþættinum þar sem lögmaðurinn Saga Ýrr Jónsdóttir var gestur hans. Viðtalið vakti mikla athygli en í vikunni sagði Saga Ýr sig frá málinu og játaði að hafa farið yfir strikið með því að mæta í hlaðvarpsþáttinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál