Skoðanirnar á nýju landsliðstreyjunni í knattspyrnu eru jafn misjafnar og þær eru margar en treyjan var kynnt með pompi og pragt í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum í dag.
Margir taka vel í búninginn en aðrir eru óánægðir. Enn aðrir eru óvissir þar sem engin fyrirsæta var fengin til þess að sjá í búningnum.
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni um búninginn á Twitter.
Ánægðir:
Flottur búningur👌🏻. #fyririsland
— gulligull1 (@GGunnleifsson) March 15, 2018
Eftir smá meltingu er þessi hvíta þokkalega töff. Annað árið í röð sem hvíta er mun flottari en þessi bláa. Ennþá á þeirri skoðun að blái sé ljótur #FyrirIsland
— Ástrós Ýr (@astrosyr) March 15, 2018
Ánægður með búninginn!! Stílhreinn, eldur á herðum okkar, tōpum engum návígjum í sumar!
— Gudmundur Hafthorsso (@GummiHaff) March 15, 2018Eftir smá meltingu er þessi hvíta þokkalega töff. Annað árið í röð sem hvíta er mun flottari en þessi bláa. Ennþá á þeirri skoðun að blái sé ljótur #FyrirIsland
— Ástrós Ýr (@astrosyr) March 15, 2018
Nýja treyjan er geggjuð. Rauða er samt flottust #fyririsland
— Bjarni Dagur (@bjarnidagur) March 15, 2018
Nýja treyjan ágæt, held maður verði fljótur að venjast henni.#fyrirísland #teamiceland
— Bjarki Freyr Bjarnason (@bjarkifreyrb) March 15, 2018
Þessi búningur er bara nokkuð góður, hef séð þá verri! #fyririsland
— Brynjar Elvarsson (@binnielvars) March 15, 2018
Já, þessi er fín. Ekki geggjuð... en flott #fyririsland
— Linda B Pétursdóttir (@lindabjorkpe) March 15, 2018
Geggjaður búningur :) #fyrirIsland
— Jón Páll Pálmason (@jonpall_) March 15, 2018
Óánægðir:
Ég held að sama sjálskipaða náttúrutalentið sé að hanna landsliðsbúninginn og sá um að upplýsa almenning um fjölda miða á Ísland-Argentínu. Og viðkomandi á ekkert erindi í hvorugt. pic.twitter.com/EuhRbb05N7
— Þórður S. Júlíusson (@thordursnaer) March 15, 2018
Hefði þegið aðeins víðara snið en jæja nægur tími í mót #fyririsland
— Ágúst Þór Ágústsson (@grassi20) March 15, 2018
Ókei, getur einhver sagt nýja búningnum að hann verði að fara sem allra fyrst til húðlæknis. Þessi útbrot í handakrikunum líta ekki vel út! #kvíðifyriraðsjáhvarútbrotinábuxunumverða#búningurinn #fyririsland #fotboltinet
— Vignir Rafn (@vignirrafn) March 15, 2018
Gef treyjunni 7/10 #fotboltinet #fyririsland pic.twitter.com/GA7IT8AlBt
— Guðjón (@GudjonGislason4) March 15, 2018
Þessi treyja er alveg eins og Bootleg Fan Treyjan sem var seld á bensínstöðvum í kringum EM.... #fyririsland #TeamIceland #Fotboltinet #fotbolti
— Oddur Bauer (@oddurbauer) March 15, 2018
Óvissir:
Enginn markmannsbúningur? Eða var það þessi rauði?
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) March 15, 2018
Eins flott og lead-upið á búningnum var þá hef ég nokkrar spurningar. Hvernig er markmannsbúningurinn? Hvernig eru stuttbuxurnar? Af hverju er ekkert módel að sýna búninginn? #fyrirísland
— Natan F. Guðmundsson (@natanfreyr) March 15, 2018
Ég get ekki kommentað á mitt mat á treyjunni fyrr en ég sé @ronnimall í henni. #treyjan #fotbolti #fyririsland
— Smari Gunn (@SmariGunn) March 15, 2018
En að öðru mikilvægara. Af hverju var ekki einhver manneskja fengin til að frumsýna nýja búninginn? Eins og t.d. landsliðsmaður? Ég vil geta séð og metið hvernig Jói Bolur og ístran hans muni taka sig út í þessari múnderingu í stofunni heima í sumar. #fotboltinet #fyrirísland
— S. Mikael Jónsson (@S_Mikael_J) March 15, 2018
Ég ætla ekki að dæma nýju treyjuna fyrr en ég sé Rúrik í henni #fyrirísland
— Natan F. Guðmundsson (@natanfreyr) March 15, 2018
Buxnalaust HM? Er það eitthvað? #fyririsland https://t.co/Kl0vYLj1Gk
— Erla Maria (@mariuerla) March 15, 2018