Ondo til liðs við Selfyssinga

Gilles Mbang Ondo í leik með Grindvíkingum.
Gilles Mbang Ondo í leik með Grindvíkingum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sóknarmaðurinn Gilles Mbang Ondo frá Gabon mun spila með Selfyssingum í Inkasso-deild karla í knattspyrnu í sumar.

Fram kemur á vef Selfyssinga að Ondo er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið en hann hefur verið reynslu hjá liðinu síðustu vikurnar og skoraði tvö mörk í fjórum leikjum með Selfossi í Lengjubikarnum.

Ondo, sem er 33 ára gamall, lék 14 leiki með Vestra í 2. deildinni á síðasta tímabili og skoraði 5 mörk en hann lék þrjú tímabil með Grindvíkingum frá 2008-10 og skoraði 28 mörk í 50 leikjum með liðinu í efstu deild. Hann varð markakóngur deildarinnar 2010 og á að baki fimm A-landsleiki fyrir Gabon, en hann flutti þaðan ársgamall til Parísar og er uppalinn í Frakklandi.

Á undanförnum árum hefur Ondo komið víða við og spilað með liðum í Andorra, Óman, Sameinuðu arabísku fursdadæmunum og Líbanon en hann spilaði með norsku liðunum Stabæk og Sandnes Ulf tvö fyrstu árin eftir að hann yfirgaf Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert