Valsmenn leika til úrslita

Valsmenn fagna fyrsta marki leiksins.
Valsmenn fagna fyrsta marki leiksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Valur tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld með 3:1-sigri á Stjörnunni á Valsvellinum. Patrick Pedersen skoraði tvö mörk fyrir Val.

Pedersen kom Val yfir strax á 8. mínútu eftir fallega sendingu Guðjóns Pétur Lýðssonar eftir aukaspyrnu. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks. Hilmar Árni Halldórsson jafnaði á 65. mínútu, en aðeins fjórum mínútum síðar kom Dion Acoff Val yfir á ný. 

Patrick Pedersen skoraði sitt annað mark á 85. mínútu og gulltryggði sigur Valsmanna. Valur mætir KA eða Grindavík í úrslitum en þau leika í hinum undanúrslitaleiknum næstkomandi fimmtudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert