U18 ára landslið karla í fótbolta vann 2:0-sigur á Lettum í vináttuleik ytra í gær. Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði fyrra markið og Þórður Gunnar Hafþórsson gerði síðara markið.
Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og voru lögð upp af Andra Lucasi Guðjohnsen. Liðin mætast öðru sinni á laugardag kl. 9.