Það skýrist ekki fyrr en líður á vikuna hvort nafnarnir Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson geta verið með í leiknum gegn Belgum í Þjóðadeild UEFA í Brussel á fimmtudagskvöldið.
Valsmaðurinn og Íslandsmeistarinn Birkir Már sagði í samtali við mbl.is í dag að tæpt sé að hann verði alveg búinn að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir í vináttuleiknum gegn Frökkum í síðasta mánuði.
Þá er Birkir Bjarnason ekki alveg heill heilsu en Aston Villa-maðurinn er nýkominn aftur á ferðina eftir nárameiðsli. Það sást á æfingu landsliðsins í Brussel síðdegis í dag en Birkir hlífði sér og beitti sér ekki að fullu.
Mikil meiðsli hafa herjað á leikmenn landsliðsins undafarna daga og vikur en Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Ragnar Sigurðsson, Emil Hallfreðsson, Jón Daði Böðvarsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Rúnar Már Sigurjónsson og Björn Bergmann Sigurðarson eru allir meiddir og verða ekki með í leikjunum við Belgíu og Katar.