Gary Martin, knattspyrnumaður hjá Val, er ekki á förum frá félaginu. Þetta kom fram í íþróttafréttum RÚV nú í kvöld. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sagði 433.is fyrr í dag að Martin væri frjálst að yfirgefa Val.
Ólafur sagði að Martin hentaði ekki leikstíl Vals og því væri Englendingnum frjálst að leita sér að öðru félagi. Nú virðist framherjinn hins vegar ekki vera á förum frá Hlíðarenda.
„Í samtali við Gary Martin núna rétt áðan sagði hann að hann væri ekki á förum frá Val. Hann var á fundi og æfingu með Valsmönnum núna síðdegis og samkvæmt þeim fréttum er hann ekki að fara neitt," sagði Haukur Harðarson, fréttamaður RÚV, í kvöld.