Enskur framherji til ÍBV

Sigríður Lára Garðarsdóttir fær nýjan samherja.
Sigríður Lára Garðarsdóttir fær nýjan samherja. Ljósmynd/Sigfús

ÍBV hefur fengið liðsstyrk frá Englandi í Pepsí Max deild kvenna í knattspyrnu en ÍBV hefur tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni. 

Um er að ræða enskan framherja, Anna Young, að nafni og er hún 24 ára gömul. Lék hún síðasta tímabil með Sunderland í ensku C-deildinni. Sunderland var áður atvinnumannalið en hætti því fyrir síðasta tímabil og fór liðið þá niður í C-deildina. 

Næsti leikur ÍBV er á þriðjudaginn þegar liðið heimsækir KR í 4. umferð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert