Miðvörðurinn Teitur Magnússon skrifaði í dag undir tveggja ára samning við danska knattspyrnufélagið OB en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Teitur er aðeins 18 ára gamall en hann kemur til félagsins frá FH í Hafnarfirði þar sem hann er uppalinn.
Teitur lék einn leik með FH í úrvalsdeild karla sumarið 2017 og þá á hann að baki sextán landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann eyddi hluta síðasta tímabils á láni hjá Þrótti í Reykjavík þar sem hann kom við sögu í sex leikjum með liðinu og skoraði eitt mark í 1. deildinni.
„Þetta er stór klúbbur með mikla sögu og ég vil vera hluti af þeirri sögu,“ sagði Teitur í samtali við heimasíðu félagsins. „Leikstíll liðsins hentar mér vel því ég er stór leikmaður sem vil vera með boltann. Veðrið hérna er svipað á Íslandi, nema aðeins betra,“ sagði Teitur.
OB frá Óðinsvéum hefur í þrígang orðið danskur meistari en liðið endaði í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Teitur æfði með OB fyrr á árinu en nokkur erlend lið hafa fylgst með framgangi mála hjá þessum efnilega leikmanni, þar á meðal Parma og Stuttgart.