Ungur Bliki lánaður til Ítalíu

Anton Logi Lúðvíksson er kominn til SPAL að láni.
Anton Logi Lúðvíksson er kominn til SPAL að láni. Ljósmynd/@totalfl

Knattspyrnumaðurinn Anton Logi Lúðvíksson hefur verið lánaður til SPAL á Ítalíu frá Breiðabliki. Mun hann leika með unglingaliði félagsins, en SPAL leikur í ítölsku A-deildinni.

Anton er 16 ára gamall og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands. Hefur hann æft og spilað með meistaraflokki Breiðabliks að undanförnu og er gríðarlega efnilegur.

Anton lagði m.a upp tvö mörk fyrir Breiðablik gegn HK í Fótbolta.net-mótinu á dögunum. 

Framarinn Mikael Egill Ellertsson er einnig hjá SPAL, en hann er fæddur árið 2002, einu ári á undan Antoni. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert