Haukar héldu toppbaráttunni í Lengjudeild kvenna í fótbolta, 1. deild, lifandi með 3:0-sigri á botnliði Völsungs á heimavelli í dag.
Hildur Karítas Gunnarsdóttir kom Haukum yfir á 11. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði Vienna Behnke annað mark Hauka. Var staðan 2:0 fram að 65. mínútu er Behnke skoraði sitt annað mark og þar við sat.
Haukar eiga enn möguleika á að fara upp í efstu deild en liðið er fjórum stigum frá Keflavík í öðru sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Staðan: