Kórónuveirusmit hefur greinst í karlaliði Þórs í fótbolta. Eru því bæði karlalið Þórs og kvennalið Þórs/KA í sóttkví en smit greindist hjá leikmanni kvennaliðsins í fyrrakvöld.
Var kvennaliðið skimað í gær og komu ekki fleiri smit í ljós. Verða bæði lið skimuð á ný á föstudag, en bæði lið æfðu síðastliðinn föstudag.
Æfingar íþróttaliða utan höfuðborgarsvæðisins hafa verið leyfilegar með eðlilegum hætti en æfingar innan höfuðborgarsvæðisins með takmörkunum.