Knattspyrnukonan Clara Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við uppeldisfélagið ÍBV sem gildir út næsta tímabil.
Clara, sem er miðjumaður og uppalin í Vestmannaeyjum, lék með Selfossi á síðustu leiktíð en hefur nú snúið aftur heim. Þrátt fyrir að Clara sé aðeins 18 ára hefur hún leikið 65 leiki í efstu deild og skorað í þeim sjö mörk.
Þá hefur Clara leikið 35 landsleiki með yngri landsliðum og skorað í þeim sjö mörk. Hún lék alla 16 leiki Selfyssinga í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark.