Knattspyrnumennirnir Kári Árnason og Þórður Ingason hafa framlengt samninga sína við Víking í Reykjavík en þetta staðfesti félagið á samfélgsmiðlum sínum í hádeginu.
Kári, sem er 38 ára gamall, gekk til liðs við Víkinga frá Genclerbirligi í Tyrklandi í júní 2019, en hann á að baki 37 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað tvö mörk.
Kári er uppalinn Víkingur en hann lék sem atvinnumaður með Djurgården, AGF, Esbjerg, Plymouth, Aberdeen, Rotherham, Malmö, Omonia, Aberdeen og Genclerbirligi á atvinnumannsferli sínum.
Þá á hann að baki 87 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað tvö mörk.
Markvörðurinn Þórður Ingason er 32 ára gamall en hann gekk til liðs við Víkinga frá Fjölni í janúar 2019.
Þórður er afar reyndur leikmaður en hann á að baki 158 leiki í efstu deild með Fjölni, KR og Víkingum.
Þá hefur hann einnig leikið með BÍ/Bolungarvík á ferlinum en hann á að baki 17 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.