KR gerði góða ferð til Akureyrar

Pálmi Rafn Pálmason kom KR á bragðið.
Pálmi Rafn Pálmason kom KR á bragðið. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KR vann öruggan 4:0-sigur á Þór er liðin mættust í Lengjubikar karla í fótbolta í Boganum á Akureyri í kvöld. 

Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark fyrri hálfleiks úr víti og þeir Guðjón Baldvinsson, Óskar Örn Hauksson og Oddur Ingi Bjarnason bættu allir við mörkum í seinni hálfleik. 

KR er með sjö stig eftir þrjá leiki, eins og Víkingur Reykjavík. Þór rekur lestina í 2. riðli án stiga eftir þrjá leiki. 

Upplýsingar um markaskorara fengust á Fótbolta.net. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert