Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í kvöld að Íslandsmótið í knattspyrnu 2021 hæfist föstudaginn 30. apríl með keppni í úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildinni.
Fyrsta umferðin átti að fara fram dagana 22. til 24. apríl en er seinkað til 30. apríl til 2. maí.
Keppni í Mjólkurbikar karla sem átti að hefjast 8. apríl hefst í staðinn föstudaginn 23. apríl en mótanefnd KSÍ hefur annars ákveðið að hefja mótin sem hér segir:
Mjólkurbikar karla
- Keppni Mjólkurbikars karla hefst 23. apríl og verður 1. umferð keppninnar leikin dagana 23. - 25. apríl.
- 2. umferð verður leikin 30. apríl - 3. maí. Aðalkeppnin hefst svo í júní.
- Föstudaginn 16. apríl verða nýjar dagsetningar leikja Mjólkurbikarsins kynntar.
Pepsi Max-deild karla
- 1. umferð Pepsi Max-deildar karla verður leikin dagana 30. apríl - 2. maí.
- Föstudaginn 16. apríl verður ný niðurröðun leikja Pepsi Max-deildar karla kynnt.
- Endurröðun mótsins nær í meginatriðum til fyrstu 5 umferðanna.
Önnur mót meistaraflokka
- Gert er ráð fyrir að önnur mót sumarsins í meistaraflokki verði leikin skv. núverandi leikjadagskrá.
- Hér er átt við Pepsi Max-deild kvenna, Mjólkurbikar kvenna, Lengjudeild karla og kvenna, 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla og 4. deild karla.
- Ákvörðun um framhald Lengjubikarsins og Meistarakeppni KSÍ verður rædd á fundi stjórnar KSÍ fimmtudaginn 15. apríl.
Mót yngri flokka
- Vinna við uppsetningu á Íslandsmótum og bikarkeppnum yngri flokka er í fullum gangi.
- Gert er ráð fyrir að keppni yngri flokka hefjist skv. núverandi leikjadagskrá.