ÍBV vann ótrúlegan 2:1-sigur á Þór er liðin mættust í Lengjudeild karla í fótbolta á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld.
Stefán Ingi Sigurðarson kom ÍBV yfir á 11. mínútu en Jóhann Helgi Hannesson jafnaði fyrir Þór á 29. mínútu og var staðan í hálfleik 1:1.
Eyjamaðurinn Nökkvi Már Nökkvason fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 65. mínútu en þrátt fyrir það nældu heimamenn sér í vítaspyrnu á 89. mínútu.
Guðjón Pétur Lýðsson hitti ekki á markið úr spyrnunni en það kom ekki að sök því nafni hans Guðjón Ernir Hrafnkelsson skoraði sigurmark ÍBV í uppbótartíma.
Með sigrinum fóru Eyjamenn upp í tíu stig og í fimmta sæti. Þór er í áttunda sæti með sjö stig.